Gestabók

Skrifa í Gestabók

  • Skráðir notendur gefi upp notandanafn og lykilorð efst á síðunni og skrifi svo færslu í reitinn hér að neðan. Gestabókarfærslan birtist strax.
  • Óskráðir notendur geta einnig skrifað færslu, en verða beðnir um nafn og netfang eftir að smellt er á "Senda". Þeir fá staðfestingarslóð senda í tölvupósti og þurfa að smella á hana til að gestabókarfærslan birtist.

Gestir:

 Valgerður Sigurðardóttir

Margrét!

Nú verður þú að pússa gleraugun þín, þú segir á bloggsíðu Herdísar að bændur hafi meiri og betri aðgang að netinu en þéttbýlisbúar!!!! Heyr á endemi, og hvenar styrkti ríkið bændur til tölvukaupa? og hélt þessi námskeið? Alla vega hef ég misst af því dæmi eins og það leggur sig, borgaði sjálf mína tölvu fullu verði og fæ í hausinn feitan símarikning um hver mánaðarmót. Að vísu er kominn starfsmenntasjóður bænda og ég fékk styrk úr honum vegna setu á heilsdagsnámskeiði s.l. vor, en hef trú á að ég hafi sjálf verið búin að leggja þessum sjóði eitthvað til. Þetta er sambærilegt og hjá öllum stéttarfélögum að fólk getur fengið niðrgreidd námskeið, vísa bara í bæklinga frá öllum símenntunarmistöðvum landsins

Valgerður Sigurðardóttir, sun. 14. okt. 2007

Snorri Hansson

Kæra Margrét

Ég er að mestu leiti sammála þér um gróðurfar, sauðfé og fl. Aftur á móti líkar mér ekki að vera útilokaður frá því að skrifa athugasemdir við bloggið þitt. Er meira að segja gamall Akurnesingur árgerð 44. :=)

Snorri Hansson, fim. 9. ágú. 2007

Þakka áhuga á myndunum mínum

Sæl Margrét. Ég er afar ánægð ef myndirnar mínar geta opnað augu almennings fyrir ástandinu upp á hálendi og víðar. Af skrifum og rökræðum um ástandið má sjá að yfirleitt hefur almenningur enga hugmynd um hversu óteljandi fjöldi sauðfjár nagar upp landið okkar. Ella hlytu viðbrögðin að vera allt önnur! Fram að þessu hef ég getað sagt við sjálfa mig og aðra: "ef almenningur bara vissi!!".... Jæja... nú veit hann...

Harpa Fönn Sigurjónsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 30. júlí 2007

 Valgerður Sigurðardóttir

Halló

Þetta vissi ég að væri rétti vettvangurinn fyrir þig

Valgerður Sigurðardóttir, fim. 19. júlí 2007

Landvernd

Það hefur enga þýðingu að planta trjágræðlingum, nema girða af blessaða rolluna, svo hún éti þá ekki niður jafnóðum, eins og hún hefur gert frá landnámi og komið í veg fyrir alla endurnýjun síðan.

Hallgrímur P. Helgason (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 14. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband